Glansa [Shiny] lyrics
Glansa [Shiny] lyrics
Tamatoa: Sko, Tamatoa var ekki alltaf svona töff
Var bara drabbarakrabbi
En nú er ég bara glaður, ekkert blöff
Því ég er fallegur, elskan
Sagði amma þín: "Hlusta á hjartað þitt"?
Ver sú sem þú ert hið innra?
Í þremur orðum vil ég benda þér á eitt
Sú gamla laug
Það er betra að glansa
Eins og fjársjóður úr sjóræningjaksel
Skrúbba vel og láta það glansa
Ég mun glitra eins og hefðarmeyjar háls
Eftir smá
Veistu að, fiskar eru domm, domm
og þeir elta allt sem glitrar
Stórfréttir!
Ó, og hér þeir koma, komm, komm
til þess bjartasta sem glitrar
Fiskréttir
Ég elska að borða
Og þig ét án orða
Vaiana: Nei!
Maui: Hey, krabbakaka!
Ég er mættur
Það er komið að Maui!
Hvað segiru, litli vinur?
Risafálki? Kemur strax
Tamatoa: Jæja, jæja, jæja
Litli Maui er í vanda með útlit
Þú litli hálfi-smálfi-mini-guð
Áts! Þetta gengur ekki vel, er bölvað strit
Fattarðu? Því þú hittir ekki, væni minn
Samt ég hrósa verð þér fyrir þetta tvist
Og fínu húðlistaverkin
Því eins og þú, ég gerði sjálfan mig að list
Ég get ei falið mig því ég glansa
Sjá mig ljóma eins og demanta á haug
Fetta'og bretta mig því ég glansa
Sendu hermenn en það verður ekkert spaug
Mín skel er hörð
Maui minn, ekki meir, meir, meir
Þú getur vart þess vænst að hálfur guð
toppi þetta stuð
Flettu því upp
Og þú deyr, deyr, deyr
Nú ég þarf að rífa í parta þitt auma hjarta
Óralangt frá þeim sem skildu þig eftir
Þú leitar að ást þeirra sem þig ei vildu
Æ, reyn þig að herða
En þín brynja er ekki nógu vel gerð
Maui, nú er tími til að stansa
Hefur þú séð nokkurn glansa eins og mig?
Það er það síðasta sem þú sérð
C'est la vie, mon ami
Já, ég glansa
Nú ég ét þig, berðu upp þína hinstu bón, litla flón
Þú munt aldrei ná að glansa
Þú þráir að fá að glansa
Vaiana: Hey!
Ég er með svolítið glansandi fyrir þig
- Artist:Moana (OST)