Það'er Sjálfsagt [You're Welcome] lyrics
Það'er Sjálfsagt [You're Welcome] lyrics
Allt í lagi, allt í lagi
Ég skil hvað er að gerast hér
Þú höndlar ekki stórfengleika minn
Þú veist ei þitt rjúkandi ráð
Það er bara sætt
Já, ekkert breyttist, litla stelpuskinn
Vaknaðu upp, kjáninn þinn
Ó já, þetta er ég
Það er Maui. Andaðu inn
Ég veit það er bratt, já algjört puð
þegar starir þú á hálfan guð
Þú þarft ekki að þakka það er alveg sjálfsagt
Fyrir sjávarföll, sól og ský
Hey, ekkert mál, ekkert mál
Það er sjálfsagt
Það var jú bara algert smotterí. Hey!
Hver var það sem dró upp himininn
er þjóð þín svaf svo dreymin? Já, minn!
Þegar köld var nótt, hver dró upp eld úr heljarþró?
Þú horfir á hann, jó!
Ó, líka ég snaraði sól
Það er sjálfsagt
Það lengdi daginn, fékk ekkert hól
Einnig ég beislaði byr
Það er sjálfsagt
Sem fyllir segl og hristir tré
Það er ekkert að þakka, það er sjálfsagt
Fyrir eyjar sem dró ég úr sæ
Það er óþarfi að biðja, ekkert mál
Það er sjálfsagt. Ha!
Ég er víst bara þannig og ég hlæ
Það er sjálfsagt
Það er sjálfsagt
Og hugsaðu út í það
Hey, ég gæti talað bara endalaust
Útskýri furðuverk með minni fögru raust
Sjávarföll, gras og sker?
Oh, það var Maui að fíflast í þér
Ég veiddi ál og garnirnar gróf
Sáði einu fræi - kókoshnetur!
Hvað má læra? Hver er þá lexía?
þá ei Maui er hrjáir hann óþreyja
Já, og sagan hér skráð á mitt skinn
Hún er kort af þeim sigrum ég vinn
Sjá hvar ég var. Já, ég fór hrepp úr hreppi
Sjá þennan dverg Mini-Maui hreint ærast í steppi
Leyf mér að segja, ó hey, það er sjálfsagt
Fyrir undraheim þennan hér
Það er ókei, það er ókei
Það er sjálfsagt
Og talandi um það, ég burtu fer
Þú skalt bara segja: "Hey, það er sjálfsagt"
Af því ég þarf þennan bát
Ég tek þetta fleyg, ó vei
Það er sjálfsagt
Æ, stilltu þig um grát, vertu nú kát
Það er sjálfsagt
Það er sjálfsagt
Og þakkir
- Artist:Moana (OST)