Innrás lyrics

Songs   2024-11-30 02:42:42

Innrás lyrics

Heyrir þú í vargsins væli?

Vopnlaus ertu, auminginn.

Nálgast ég þitt nægtabæli,

nú er mestur kraftur minn.

Borinn var í myrkri moldu,

mér var gefið kvalræðið.

Blæðandi mig böndin þoldu,

brakaði í hverjum lið.

Vitundin er vafin drunga,

villandi og óskapleg.

Blóðþorstann, þá byrði þunga,

borið hef um langan veg.

Brotinn, grimmur, bitur, sekur,

bifast ekki ögn úr stað.

Heiftin áfram hatrið rekur,

herðir tak og kreppir að.

Hyldýpið sem hef í brjósti

heimtar af mér gjörðir þær

að ég þig með illu ljósti,

opni sár sem hvergi grær.

Baldursbrá,

Bæjará.

Himinhá,

Heljarspá.

Heyrir þú í vargsins væli?

Vakir þú svo seint um kvöld?

Þú sem veitir höltum bæli

hefur ekki vopn og skjöld.

  • Artist:Skálmöld
  • Album:Skálmöld & Sinfóníuhljómsveit Íslands
See more
Skálmöld more
  • country:Iceland
  • Languages:Icelandic, English
  • Genre:Metal
  • Official site:http://www.skalmold.is/
  • Wiki:http://en.wikipedia.org/wiki/Skálmöld
Skálmöld Lyrics more
Excellent Songs recommendation
Popular Songs
Copyright 2023-2024 - www.lyricf.com All Rights Reserved