Samband í Berlin [Sambönd í Berlin] [Russian translation]

Songs   2024-05-05 04:09:29

Samband í Berlin [Sambönd í Berlin] [Russian translation]

Nú þyrla vindar haustsins hinstu blöðum

Borgin gerist þung og sljó

Skakkur hangi ég á hinum og þessum stöðum

Bráðum kemur slydda og snjór.

Myrkrið hug minn umlykur

Að blekkja sjálfan mig það er mín fró.

Horfa á vini sína bryðja sýrur eins og sykur

Spá í augu þeirra sem eru eins og kulnuð eldstó.

Í frosti, í rauðri lakkápu með bláa fætur

Klúryrðum hún hvíslar að þér og hún lyktar af ódýrum bjór.

Kynfærin þurr eins og hákarlaskrápur

Verndarinn var ómenni og eftir því stór.

Nú hylur snjórinn haustsins hinstu blöð

Borgin gerist þung og sljó.

Með bakpokann arka ég streit niður á stöð

því af Berlín eða Hamborg hefi ég fengið nóg.

See more
Utangarðsmenn more
  • country:Iceland
  • Languages:Icelandic
  • Genre:Punk
  • Official site:
  • Wiki:https://en.wikipedia.org/wiki/Utangar%C3%B0smenn
Utangarðsmenn Lyrics more
Excellent Songs recommendation
Popular Songs
Copyright 2023-2024 - www.lyricf.com All Rights Reserved