Á meðan jörðin sefur lyrics

Songs   2024-05-18 04:52:52

Á meðan jörðin sefur lyrics

Meðan jörðin sefur

öll umlukin kyrrð og ró

vakir einn en dreymir þó

starir upp í ský.

Huga sínum vefur

þétt um hjartans innstu þrá

að hann megi henni hjá

hvíla enn á ný.

Hverfa svefns og vöku skil

hugur saman reyrir

það sem er og veitir yl

og hitt sem ekki heyrir til.

Hugarflugi gefur

lausan tauminn, gleymir sér

frestar því sem erfitt er

svífur upp í ský.

Hverfa svefns og vöku skil

hugur saman reyrir

það sem er og veitir yl

og hitt sem ekki heyrir til.

See more
Árstíðir more
  • country:Iceland
  • Languages:Icelandic, English, German
  • Genre:Classical, Indie, Rock
  • Official site:http://www.arstidir.com/
  • Wiki:http://en.wikipedia.org/wiki/%C3%81rst%C3%AD%C3%B0ir
Árstíðir Lyrics more
Árstíðir Also Performed Pyrics more
Excellent Songs recommendation
Popular Songs
Copyright 2023-2024 - www.lyricf.com All Rights Reserved