Á einu augabragði lyrics
Á einu augabragði lyrics
Sem bresti stíflugarðar
Og streymi heitt og kalt,
Á einu augabragði
Virðist endurnýjast allt.
Er þetta annað upphaf
Eða er allt búið spil?
Ég finn í hverri frumu
Eitthvað undarlega til.
Það er sem eitthvað þverri
En þó sem bætist í.
Já, ég virðist ofurnæmur
En þó dofinn næstum því.
Það er ekki allt sem sýnist
Og svo margt ég ekki skil.
Og ég finn í hverri frumu
Eitthvað undarlega til.
Um fingur mér og fætur
Fara tilfinningaflóð.
Kannski' er allt á enda runnið
Eða finn ég nýja slóð?
(Ég finn svo til)
Það gerðist eitthvað undur
(Ég elska þig)
Hvað hefur komið yfir mig?
(Hver huggar mig?)
Það fór eitthvað í sundur
(Hvað verður nú?)
En kannski tekur betra við
(Ég finn svo til)
Oh, ég finn í hjarta mínu
(Ég finn svo til)
eitthvað svo undarlega til.
Svo undarlega til.
Sem bresti stíflugarðar
Og streymi heitt og kalt
Á einu augabragði
það umturnaðist allt
Á einu augabragði
Aðeins einu augabragði
það gerðist á einu augabragði
Á einu augabragði
- Artist:Sálin hans Jóns míns
- Album:Arg